♠ Hefurðu almennt ekki áhuga á kynlífi?
♠ Finnst þér kynlíf í samböndum vera meira kvöð en eitthvað skemmtilegt?
♠ Horfirðu á kynlíf frekar með vísindalegum augum en tilfinningalegum?
♠ Finnst þér þú ekki skilja allt sem fólk talar um þegar kynlíf er rætt?
♠ Þegar þú stundar kynlíf er það bara meh... eða eins frábært og aðrir segja að það sé?
♠ Finnst þér fólk vera að ýkja þegar það talar um hversu mikið það elskar kynlíf?
♠ Hefurðu þóst hafa áhuga á einhverjum kynferðislega til að passa inn í hópinn?
♠ Finnst þér þú brotinn eða eitthvað að þér kynferðislega? Eins og þú þurfir að fara til læknis eða finna út úr þessu?
♠ Hefurðu stundað kynlíf því þér finnst þú ættir að gera það frekar en að þú vildir gera það?
Nei, eikynhneigð er ekki val. Þeir sem lifa skírlífi hafa oft löngun til að stunda kynlíf en kjósa að bæla þá þörf.
Þarftu ekki bara að kíkja til læknis? Er þetta ekki bara hormónaójafnvægi? Kannski ertu bara getulaus?
Nei, engin tenging er á milli neins líkamlegs áfalls né sjúkdóms og eikynhneigðar, ekki frekar en gagnkynhneigðar, samkynhneigðar eða annarra hneigða. Heilbrigði kynfæra er óháð kynhneigð og kemur því eikynhneigð ekkert við. Við bjóðum samt alla velkomna, sama hver ástæður þeirra eru.
Kom ekki bara e-ð fyrir þig? Þarftu ekki að fara til sálfræðings?
Nei, engin tenging er á milli andlegra áfalla né sjúkdóma og eikynhneigðar, ekki frekar en gagnkynhneigðar, samkynhneigðar eða annarra hneigða.
Ertu ekki bara hrædd/tt/ur við að stunda kynlíf?
Nei, margir eikynhneigðir stunda kynlíf af ýmsum ástæðum, þeir laðast bara lítið eða ekkert að öðrum. Hegðun þín segir ekki til um kynhneigð þína.
En þú sagðir að þessi væri sæt/t/ur, hvaða máli skiptir hvernig viðkomandi lítur út ef þú ert eikynhneigð/t/ur?
Eikynhneigðir geta laðast að öðrum og þótt aðrir sætir, fallegir og svo framvegis, en sú hrifning er ekki kynferðisleg.
Hvernig eru rómantísk sambönd frábrugðin vinasamböndum? Eru rómantísk sambönd ekki bara vinasambönd með kynlífi?
Rétt eins og fólk getur stundað kynlíf án rómantískra tilfinninga geta einstaklingar verið í rómantískum samböndum án kynlífs. Tilfinningar eru mismunandi milli einstaklinga og ást er mismunandi. Vina ást, foreldra ást, maka ást, allskonar ást. Ást á milli Vina er ekkert minna merkileg en rómantísk ást en það er vissulega munur. Ekki allir finna þó fyrir þessum mun og því eiga sumir erfitt með að skilja muninn þar af því þeir hreinlega upplifa hann ekki.
Stunda eikynhneigðir sjálfsfróun?
Eikynhneigðir geta haft mikla kynhvöt og stunda því jafnvel sjálfsfróun, sumir gera það einfaldlega af því það er gott, sumir gera það ekki.
Stunda eikynhneigðir kynlíf?
Sumir gera það fyrir makann sinn, sumir til að eignast börn og sumir einfaldlega af því það er gott. Sumir hafa bara engan áhuga á því og sleppa því.
Hvernig veistu að þú sért eikynhneigð/t/ur ef þú hefur ekki prófað?
Ert þú búin að prófa kynlíf með kyni sem þú laðast ekki að? Ekki? Hvernig veistu þá að þú laðist ekki kynferðislega að því? Þú bara veist það, eikynhneigðir vita það líka.
Þetta er bara ekki rökrétt, ef væri ekki fyrir kynlíf væri mannkynið útdautt! Maðurinn verður að stunda kynlíf!
Það eru til eikynhneigðir sem vilja eignast börn og jafnvel stunda kynlíf til þess eða skoða kannski frekar tæknifrjóvgun eða aðra möguleika. Einnig eru til aðilar sem eru gagnkynhneigðir sem vilja ekki börn.
Þú bjóst bara til þetta orð af því þú ert svo óaðlaðandi að það vill enginn vera með þér!
Útlit og kynferðisleg hrifning eru aðskildir hlutir. Þó þú tengir kynhneigð viðkomandi við að viðkomandi eigi að líta út á vissan hátt og hegða sér á vissan hátt er það bara ekki þannig, það er bara staðalímynd sem er ótengd raunveruleikanum. Eikynhneigðir geta verið "sexy" og aðlaðandi. Aðrir geta laðast að þeim kynferðislega þó eikynhneigðir laðist ekki að öðrum kynferðislega.
Borða eikynhneigðir ananas á pizzu?
Svarið við flestum spurningum um eikynhneigða er "Sumir gera það, aðrir ekki". Að vera eikynhneigður skilgreinir þig ekki sem einstakling, það er bara partur af manni, við erum öll einstaklingar og erum jafn mismunandi og við erum mörg.